Heiti námskeiðs
Fjarnám og kennsla

Braut / námsleið / kjörsvið
Framhaldsdeild, Uppeldis- og menntunarfræði – upplýsingatækni og miðlun[1]

Tegund námskeiðs (grunnnámskeið, skyldunámskeið, valnámskeið)
Valnámskeið

Misseri
Vor
Stærð námskeiðs í einingum
5 (10 ECTS)
Hámarksfjöldi nemenda
40
Forkröfur

Námskeiðslýsing

Markmið
Nemendur
  • þekki sögu og þróun fjarnáms og –kennslu
  • kunni skil á lykilhugtökum, þekki helstu kenningar á sviðinu og geti beitt þeim í fræðilegri umfjöllun.
  • þekki möguleika í skipulagningu fjarnáms með mismunandi kennsluaðferðum og tæknibúnaði og mismunandi útfærslur á hvernig net/-fjarnámi er blandað við staðnám.
  • geti byggt á fræðilegri þekkingu, rannsóknum og reynslu við skipulagningu fjarnáms.

Önnur markmið verða skilgreind í samræmi við þarfir og áhuga þátttakenda á námskeiðinu.

Inntak / viðfangsefni
Fjarnám- og kennsla, blandað nám, dreifnám, netnám: þróun og rannsóknir

Vinnulag
Fyrirlestrar, lestur og umræður um fræði og nýjar rannsóknir; athuganir á mismunandi fjarnáms- og kennsluaðferðum og tæknibúnaði til fjarkennslu á mismunandi skólastigum. Meðal annars verður skoðað og rætt um það fjarnám sem þátttakendur hafa reynslu af sem fjarnemar og/eða kennarar, nemendur gera eitt minna hópverkefni (lausnaleitanám) og annað stærra einstaklingsverkefni.

Námsmat
Hópverkefni byggt á aðferðum lausnaleitarnáms (problem-based learning): 25%. Framlög á Neti t.d. umræðuframlög, innlegg í þekkingarbanka, leiðarbækur (einstaklingsvinna): 25%. Lokaverkefni: Heimilda- og/eða rannsóknarritgerð (einstaklings- eða paravinna) eða þróunarverkefni s.s. hönnun fjarnámsáfanga með greinargerð: 50%.

Lesefni
Simonson, M., Smaldino, S., Albright, M. og Zvacek, S. (2006). Teaching and learning at a distance: Foundations of Distance Education (3ja útgáfa). Upper Saddle River, New Jersey: Prentice Hall.

Útdráttur námskeiðslýsingar á ensku.


[1] Ath. áður nefnt tölvu- og upplýsingatækni